Ljósafell
6/2/2012
- 08:51:50 |
|
06.02.2012. Ljósafell er nú að landa og er aflinn um 95 tonn. Uppistaða aflans er ýsa. Skipið heldur aftur til veiða á morgun 7. febrúar kl. 13:00 |
|
|
|
|
Hoffell
4/2/2012
- 21:13:59 |
|
04.02.2012. Hoffell er nú á landleið með fullfermi af loðnu sem fékkst í troll austur af Langanesi. Skipið verður inni snemma í fyrramálið, á sunnudegi, og heldur strax aftur til loðnuveiða að löndun lokinni. |
|
|
|
|
Hornfirðingar landa á Fáskrúðsfirði
1/2/2012
- 15:50:58 |
|
Nú er loðnuvertíðin komin í fullan gang og stefnir í eina bestu loðnuvertíð í mörg, en úthlutun til íslenskra skipa er nú 548.000 tonn.
Í nótt landaði Jóna Eðvalds SF 200 um 400 tonnum af loðnu hjá LVF og Ásgrímur Halldórsson SF 250 er að landa um 1.400 tonnum.
Hoffell er búið að landa fjórum túrum og bíður nú löndunar með um 750 tonn, en bræla er nú á miðunum.
Eftir þessar landanir verða komin á land á Fáskrúðsfirði um 6.500 tonn af loðnu. Loðnan hefur að mestu farið til bræðslu, en aðeins lítið magn af stærsta sílinu hefur verið fryst til manneldis. |
|
|
|
|
Áramót
31/12/2011
- 11:07:00 |
|
Óskum starfsfólki okkar og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslan hf. |
|
|
|
|